Hlébarði – Kósýgalli
Slepptu villidýrinu lausu! Hlébarðagallinn er flottur, djarfur og einstaklega kósý — með hlébarðamynstri sem lætur þig skera þig úr hvaða kósýkvöldi sem er.
Þetta er gallinn fyrir þann sem vill eitthvað aðeins öðruvísi — ekki bara krútt, heldur karakter. Hvort sem þú ert í sófanum, í útileigu eða á búningaballi.
Eiginleikar
- 100% polyester flís — mjúkt, hlýtt og endingargott
- Hlébarðamynstur — dökkt og djarft, ólíkt öllum öðrum
- Hlý hetta — með eyrum og andliti sem klára look-ið
- Vasar — hagnýtir og rúmgóðir
- Þvottavænt — heldur lit og lögun eftir þvott
Stærðir: S–XL. Módelið á myndinni er 172 cm og er í stærð L. Stærðirnar eru í minni kantinum — skoðaðu stærðartöfluna. Minnstu stærðirnar geta líka passað á börn og unglinga.
Það er ekkert mál að skipta ef gallinn passar ekki. 🐆